Magnað myndband af ferðinni á Hraundranga

Haraldur Örn Ólafsson, Erlendur Pálsson og Björn Davíð Þorsteinsson eru …
Haraldur Örn Ólafsson, Erlendur Pálsson og Björn Davíð Þorsteinsson eru félagar í Fjallafélaginu. Skjáskot/YouTube

Fjallagarparnir Haraldur Örn Ólafsson, Erlendur Pálsson og Björn Davíð Þorsteinsson klifu á topp Hraundranga í Öxnadal 27. ágúst síðastliðinn. Þeir tóku ferðina upp og hafa nú birt myndbandið.

Myndbandið sýnir Hraundranga í allri sinni dýrð og hversu erfitt er að komast á tindinn, sem lengi var talinn ókleifur. Klifrið upp drangann er um 70 metar og farið í tveimur spönnum. Hraun­drangi er í 1.075 metra hæð yfir sjávarmáli og blas­ir við þegar ekið er um hring­veg­inn í Öxna­dal. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert