Deildi íslensku zúmbaatriði frá gossvæðinu

Ricky Martin deildi íslensku zúmba-myndbandi.
Ricky Martin deildi íslensku zúmba-myndbandi. AFP

Caryna Galdys Boliver Serge fór nýlega með öðrum zúmba-kennurum frá Reebok Fitness að skoða eldgosið í Geldingadölum. Zúmba-kennararnir tóku upp myndband við nýtt lag frá Ricky Martin sem deildi myndbandi þeirra í sögu á Instagram-síðu sinni. 

Caryna er mjög hrifin af eldgosinu og var hún að fara í fjórða sinn þegar hún tók upp myndbandið. Caryna er frá Venesúela en hefur búið á Íslandi í 16 ár og kennir spænsku í Tækniskólanum. Hún er með marga útlenska fylgjendur á Instagram sem fylgjast spenntir með gosferðum hennar á samfélagsmiðlum. 

„Ég er líka zúmbakennari hjá Reebok Fitness og finnst gaman að taka upp myndbönd. Mér fannst gaman að blanda saman zúmba og eldgosinu. Ricky Martin var að gefa út nýtt lag í síðustu viku. Hann bað fólk um að senda myndbönd með laginu. Svo valdi hann myndbandið frá eldgosinu,“ segir Caryna.

Ricky Martin er afar vinsæll í zúmba-tímum og gríðarlega vinsæll í hinum spænskumælandi heimi. Caryna segist hafa verið í algjöru sjokki þegar hún áttaði sig á að stjarnan hefði deilt myndbandinu hennar og segir það bara skemmtilegt. 

Ricky Martin deildi zúmbadansinum á Instagram-síðu sinni.
Ricky Martin deildi zúmbadansinum á Instagram-síðu sinni. Skjáskot/Instagram

Hér fyrir neðan má sjá myndbandið sem Martin deildi í sögu á Instagram. Erna Rós Sigurjónsdóttir, Edda Sólveig Þórarinsdóttir, Agata Klimowska dansa zúmba í myndbandinu með Carynu. 

View this post on Instagram

A post shared by Caryna Bolívar (@meneliel)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert