41 árs með bera óléttukúlu á forsíðu Vogue

Sienna Miller á von á sínu öðru barni.
Sienna Miller á von á sínu öðru barni. AFP

Leikkonan Sienna Miller prýðir forsíðu nýjasta tölublaðs tímaritsins Vogue þar sem hún berar glæsilega óléttukúlu. Miller er 41 árs og er ófrísk að sínu öðru barni, en fyrir á hún tíu ára gamla dóttur með fyrrverandi kærasta sínum Tom Sturridge.

Þegar Miller verð fertug í desember 2021 sagði hún frá því að hafa fryst egg og gaf því í skyn að hún væri ekki alveg hætt að hugsa um barneignir. Í ágúst síðastliðnum greindu fjölmiðlar svo frá því að leikkonan ætti von á barni með kærasta sínum Oli Green, en hún er 15 árum eldri en Green.

Er 15 árum eldri en kærastinn

Parið opinberaði sambandið sitt þegar þau mættu saman í Óskarspartí hjá Vanity Fair í febrúar 2022. Það vakti þó nokkra athygli fyrir þær sakir að Miller er 15 árum eldri en Green, en hann er 26 ára gamall. 

Í viðtali við Vogue greinir Miller frá því að hún eigi von á stúlku, en hún er nú gengin 28 vikur á leið og segir meðgönguna vera byrjaða að taka vel í. Með viðtalinu birtust fallegar myndir af Miller og Green sem voru teknar af ljósmyndaranum Annie Leibovitz, en á mörgum myndanna berar Miller óléttukúluna, þar á meðal á forsíðumyndinni.

View this post on Instagram

A post shared by Vogue (@voguemagazine)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert