Ársel vann söngkeppni Samfés

Ólöf Kristín Þorsteinsdóttir, 15 ára, og aðrir fulltrúar Ársels fluttu …
Ólöf Kristín Þorsteinsdóttir, 15 ára, og aðrir fulltrúar Ársels fluttu lagið Mercy, sem velska söngkonan Duffy hefur gert frægt. mbl.is/hag

Félagsmiðstöðin Ársel vann söngkeppni Samfés, sem lauk fyrir stundu en sent var út frá keppninni í Útvarpinu. Ólöf Kristín Þorsteinsdóttir, 15 ára, og aðrir fulltrúar Ársels fluttu lagið Mercy, sem velska söngkonan Duffy hefur gert frægt.

Í öðru sæti varð Elísabet Ormslev frá Laugó en hún flutti lagið Unbreak my heart sem Tony Braxton flutti upphaflega.

Í þriðja sæti varð María Ólafsdóttir frá Bólinu. Hún flutti lagið Inside your heaven.

Stúlkurnar sem enduðu í fyrstu þremur sætunum fengu m.a. upptökutíma hjá Error stúdíói.

Um 1.500 manns tóku þátt í undankeppnum Samfés en 29 atriði kepptu til úrslita. Tæplega 3.000 manns voru á lokakeppninni í Laugardalshöll.

Söngkeppnin er hluti af árshátíð Samfés, samtaka félagsmiðstöðva, sem hófst í Laugardalshöllinni í gærkvöldi með miklu balli, en þar komu meðal annars fram Veðurguðirnir, Bloodgroup, Dr. Spock og Páll Óskar. Þrjátíu atriði frá jafnmörgum félagsmiðstöðvum tóku þátt í keppninni í dag.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson