Stikla úr The Good Heart frumsýnd

Stikla úr mynd Dags Kára Péturssonar, The Good Heart, er nú frumsýnd á mbl.is en kvikmyndin sjálf verður frumsýnd á Íslandi 6. mars. Myndin hefur að undanförnu verið sýnd á kvikmyndahátíðum víða um heim en hún hefur nú verið seld til sýninga í 22 löndum.

Myndin var tekin upp á Íslandi, í New York og Dómíníska lýðveldinu. Með aðalhlutverk fara Brian Cox og Paul Dano. Myndin fjallar um geðstirðan bareiganda sem hefur fimm sinnum fengið hjartaáfall. Á sjúkrahúsi hittir hann  heimilslausan ungan pilt og ákveður að taka hann undir sinn verndarvæng með það fyrir augum að hann taki við rekstri barsins í fyllingu tímans.

Allt gengur að óskum þar til  flugfreyja nokkur kemur inn á barinn með ófyrirsjáanlegum afleiðingum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Mundu að lesa smáa letrið í öllum þeim skjölum sem fyrir þig eru lögð til undirritunar. Einbeittu þér að eigin málum og láttu aðra eiga sig um hríð.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
2
Steindór Ívarsson
3
Lotta Luxenburg
4
Lucinda Riely og Lucinda Riley
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Mundu að lesa smáa letrið í öllum þeim skjölum sem fyrir þig eru lögð til undirritunar. Einbeittu þér að eigin málum og láttu aðra eiga sig um hríð.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
2
Steindór Ívarsson
3
Lotta Luxenburg
4
Lucinda Riely og Lucinda Riley
5
Sofie Sarenbrant