Skilin að fullu

Marc Anthony og Jennifer Lopez þegar allt lék í lyndi.
Marc Anthony og Jennifer Lopez þegar allt lék í lyndi. mbl.is/AP

Jennifer Lopez og Marc Anthony hafa gengið frá skilnaði á pappírum eftir að hafa verið aðskilin í nær þrjú ár.

Gengið var frá skilnaðinum á mánudaginn var en Jennifer Lopez og Marc Anthony fengu bæði forræði yfir 6 ára tvíburunum sem þau eiga saman. Jennifer Lopez mun þá hafa tvíburana að mestu leyti en Marc Anthony mun hafa börnin sjö daga í mánuði.

Jennifer Lopez og Marc Anthony munu reyna eftir fremsta megni að vernda börn sín frá ljósmyndurum og fréttamönnum en dómarinn í skilnaðarmáli þeirra taldi það vera í hag barnanna að vernda þau gegn slíkri athygli.

Marc Anthony sótti um skilnað í apríl 2012 en parið skildi að borði og sæng í júlí 2011.

Dómari hefur áður kveðið upp þann úrskurð í deilu á milli Marc Anthony og fyrrverandi eiginkonu hans, Dayanara Torres, að hann skuli greiða barnabætur til tveggja sona sem hann og fyrrverandi eiginkona hans eiga saman. Börnin eru 10 og 13 ára og greiðir Marc Anthony um 27 þúsund bandaríkjadollara í barnabætur á mánuði fyrir börnin. Einnig er Marc Anthony skyldugur til að greiða 12 þúsund bandaríkjadollara á ári í ferðakostnað fyrir synina og móður þeirra ásamt lækniskostnaði og skólagjöldum fyrir börnin.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson