Fyrir rúmri viku síðan greindi skíðadrottningin Lindsey Vonn frá því að hún og golfarinn Tiger Woods væru hætt saman eftir þriggja ára ástarsamband. Vonn tilkynnti sambandsslitin á Facebook-síðu sinni og sagði að þau væru bæði mjög upptekin og það hefði orðið til þess þau hefðu ekki getað varið miklum tíma saman. En núna hefur sá orðrómur komist á kreik að Vonn hafi í raun og veru hætt með Woods vegna þess að hann hélt framhjá henni.
Woods er þekktur fyrir að vera mikill kvennabósi og hann virðist eiga erfitt með að vera trúr einni konu. Samkvæmt heimildum Daily Mail er þetta raunverulega ástræðan fyrir því að Vonn gafst upp á Woods.
„Lindsey komst að því að aðrar konur væri í spilinu,“ sagði vinur Woods og heimildamaður Daily Mail. „Hann heldur alltaf framhjá þegar hann ferðast. Alveg eins og þegar hann var með Elin.“
Woods var giftur fyrirsætunni Elin Nordegren í fimm ár áður en þau skildu vegna framhjáhalds Woods. Vinur Woods segir hann hreinlega ekki „hafa stjórn á sér“.