Arna Ýr kjörin ungfrú Ísland

Arna Ýr Jónsdóttir var valin ungfrú Ísland í kvöld.
Arna Ýr Jónsdóttir var valin ungfrú Ísland í kvöld. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Arna Ýr Jónsdóttir var kjörin ungfrú Ísland í Hörpu í kvöld. 

Hún hlýtur jafnframt titilinn Miss World Iceland og mun því vera fulltrúi Íslands í Miss World í Kína í desember, samkvæmt frétt Vísis en Stöð 2 var með beina útsendingu frá keppninni.

Stúlkurnar voru 24 í ár. Vinsælasta stúlkan árið 2015, Miss People Choice Iceland var Helena Reynisdóttir. Sportstúlkan var Thelma Fanney Magnúsdóttir, módelstúlkan var Íris Rósa Hauksdóttir og Malín Agla Kristjánsdóttir var hæfileikastúlkan.

Fjallað var um keppnina í Morgunblaðinu í síðustu viku en þar kom fram að keppnin hafi ekki verið haldin í fyrra.

„Það er alltaf mikið umtal í kringum svona keppni. Fólk elskar að tala um Ungfrú Ísland og vissulega hefur Snapchat aukið umtalið, en þetta er gríðarlega skemmtileg leið að kynnast keppendum og undirbúningnum og bak við tjöldin,“ segir Fanney Ingvarsdóttir, framkvæmdastjóri keppninnar í ár og fyrrverandi Ungfrú Ísland. „Undirbúningurinn fyrir lokakvöldið er númer eitt, tvö og þrjú og ekki síður mikilvægur en sjálft lokakvöldið. Við erum búin að vera saman í þrjá mánuði og hittast, æfa og upplifa skemmtilega hluti. Hópurinn fór meðal annars á Dale Carnegie-námskeið. Snapchat er hugsað til að fá innsýn í keppnina, hvernig undirbúningi er háttað og hvað er hægt að læra af honum.

Það eru núna 19 þúsund áskrifendur að Snapchat-reikningi keppninnar. Einhverjir vilja ekki viðurkenna að þeir séu að fylgjast með en það skoða þetta margir. Við höfum fengið góð viðbrögð enda hafa margir skoðun á þessari keppni en heilt yfir hefur þetta ævintýri verið stórskemmtilegt.“

Eigendaskipti urðu á keppninni í fyrra þegar Björn Leifsson og Hafdís Jónsdóttir, kennd við World Class, keyptu keppnina og verður hún haldin í Hörpu. „Það var bara eitt ár sem keppnin var ekki og það var aldrei spurning um að koma til baka núna í ár. Undirbúningur hefur gengið vel, stelpurnar æfa mikið og góðir gestir hafa komið til okkar í heimsókn. Við höfum haldið marga fyrirlestra fyrir stelpurnar sem koma til með að hjálpa þeim í framtíðinni, meðal annars hvernig sé best að koma fram í fjölmiðlum, því að þetta eru allt óvanar stelpur að koma fram og sigurvegaranum er skyndilega hent í sviðsljósið.“


mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Reyndu að hafa hemil á löngun þinni til að koma illa fram í dag, sama hversu innilega þú telur aðra eiga það inni hjá þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riely og Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Reyndu að hafa hemil á löngun þinni til að koma illa fram í dag, sama hversu innilega þú telur aðra eiga það inni hjá þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riely og Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg