Losnaði við krabbameinið og gerir grín

Sólmundur Hólm.
Sólmundur Hólm. mbl.is/Kristinn Magnúsosn

Sólmundur Hólm eða Sóli eins og hann er kallaður er að byrja með nýtt uppistand. Hann sagði frá því á facebooksíðu sinni að um leið og hann losnaði við krabbameinið myndi hann hlaða í eina svona sýningu. 

„Um leið og ég veiktist ákvað ég að þegar (aldrei ef) ég væri búinn að losa mig við þetta helvítis krabbamein myndi ég hlaða í mína eigin uppistandssýningu. Þetta er eitthvað sem ég alltaf verið á leiðinni að gera en frestað út af hinum ýmsu ástæðum sem ég hef fundið upp í gegnum tíðina,“ segir hann á facebooksíðu sinni og bætir við: 

„Þótt það sé alltaf gaman að skemmta á árshátíðum, þorrablótum, herra- og konukvöldum eða viðlíka viðburðum þá jafnast ekkert á við að skemmta hópi sem er mættur til þess eins að hlæja.

Nú þegar ég er cancer free duga engar afsakanir. Þess vegna hef ég ákveðið að vera með uppistandssýningu með splunkunýju gríni í Kjallaranum á Hard Rock. Miðasala er formlega hafin inni á Tix.is bak við hlekkinn hér fyrir neðan - sem þið megið deila að vild.“

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson