Andrés prins og fyrrverandi eiginkona hans, Sarah Ferguson, hafa tilkynnt að dóttir þeirra Eugenie prinsessa sé trúlofuð kærasta sínum, Jack Brooksbank. Ætla þau að ganga í það heilaga í kirkju heilags Georgs í Windsor í haust.
Fram kemur í tilkynningu frá bresku konungsfjölskyldunni að þau Eugenie og Jack Brooksbank hafi trúlofast í Níkaragva fyrr í mánuðnum. Prinsessan sem er 27 ára og Brooksbank sem er 31 árs byrjuðu að hittast árið 2011 eftir að þau kynntust á skíðum í Sviss.
Eugenie, sem er ömmubarn Elísabetar Englandsdrottningar, mun því gifta sig í sömu kirkju og frændi hennar Harry gerir í maí þegar hann gengur að eiga Meghan Markle.