Kylie Minogue er fallegri en nokkru sinni fyrr á forsíðu ástralska Vogue sem kemur út í maí. Tilefni þess að hún er á forsíðunni er að hún fagnar síðar í mánuðinum 50 ára afmæli sínu.
Kylie segir í viðtalinu: „Síðustu 12 mánuðir hafa verið erfiðir. Ég gekk í gegnum skilnað, með manni sem mér fannst vera ást lífs míns. Ástin er blind og þó að allir í kringum mig hafi séð hvernig sambandið var að fara með mig þá hugsaði ég sjálf, bara ef þetta myndi lagast og hitt breytast. Svona getur lífið verið. Ég held minni stefnu og held áfram að sigla í lífsins ólgusjó.“ Þess má geta að fyrrverandi kærasti hennar er breski leikarinn Joshua Sasse.
Flestir sem hafa séð forsíðu blaðsins eru á því að Minogue sé algjörlega tímalaus og hafi aldrei litið betur út. Fólkið óskar henni alls hins besta á þessu ári og að hún muni finna ástina í örmum einhvers sem kann að meta listakonuna.