Meghan í hjónaband en ekki með Harry

Meghan Markle og Harry Bretaprins ganga í það heilaga 19. …
Meghan Markle og Harry Bretaprins ganga í það heilaga 19. maí. AFP

Tæpur mánuður er í konunglegt brúðkaup Harry Bretaprins og Meghan Markle, Meghan er hins vegar þegar búin að segja já uppi við altarið og það var ekki Harry sem hún var að giftast. 

Aðdáendur Meghan sem geta ekki beðið eftir að sjá hana ganga upp að altarinu í næsta mánuði geta séð Meghan í hlutverki Rachel í Suits ganga að eiga Mike, sem leikinn er af Patrick J. Adams, í lokaþætti af sjöunda þáttaröðinni af lögfræðidramanu. 

„Ég hef viljað giftast þér frá því að ég hitti þig fyrst,“ segir Mike í broti af þættinum sem fer í loftið í Bandaríkjunum í dag. „Þú ert eiginmaðurinn sem ég hef alltaf óskað mér,“ segir Rachel. Brúðkaupið markar endi fyrir leikarana tvo sem eru að hætta í þáttunum. 

„Við vitum að það er annað brúðkaup sem fröken Markle horfir til en að sjá hana hér í þessum brúðarljóma er eins og ævintýri sem varð að veruleika,“ sagir á vefsíðu Network USA en stöðin sýnir þættina í Bandaríkjunum. 

Stuttu eftir að tilkynnt var um trúlofun Meghan og Harry sagði hin 36 ára tilvonandi hertogaynja að hún myndi hætta í leiklistinni til þess að einbeita sér að mannúðarmálum. 

Meghan Markle og Patrick J. Adams kveðja Suits í vikunni.
Meghan Markle og Patrick J. Adams kveðja Suits í vikunni.

Meghan hefur leikið í þáttunum síðan árið 2011 og verður lokaframkoma hennar í þáttunum eins konar lokaæfing fyrir 19. maí þegar hún mun ganga að eiga Harry Bretaprins í Windsor kastala frammi fyrir 600 gestum. Þar að auki verður 2.640 manns boðið á lóð kastalans. 

Meghan sem er blönduð og sjálfstæð er lýst eins og ferskum andvara í bresku konungsfjölskyldunni. „Ég fæddist og ólst upp í Los Angeles, stelpa frá Kaliforníu sem lifir eftir þeirri hugmyndafræði að það sé hægt að laga allt með jóga, ströndinni eða nokkrum lárperum,“ skrifaði Meghan eitt sinn. 

Meghan verður annar Bandaríkjamaðurinn sem gengur í bresku konungsfjölskylduna en Wallis Simpson giftist Ját­v­arður VIII eftir að hann afsalaði sér krúnunni. Rétt eins og Wallis Simpson hefur Meghan einu sinni skilið áður en hún giftist inn í konungsfjölskylduna. 

Meghan Markle leikur í sjónvarpsþáttunum Suits.
Meghan Markle leikur í sjónvarpsþáttunum Suits. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson