Sama um skoðun fólks á 32 ára aldursmuninum

Sarah Paulson og Holland Taylor eru hamingjusamar.
Sarah Paulson og Holland Taylor eru hamingjusamar. AFP

Leikkonan Sarah Paulson prýðir forsíðu júníútgáfu Modern Luxury. People greinir frá því að Taylor tjái sig um samband sitt við kærustu sína í forsíðuviðtalinu. Paulson er í sambandi með leikkonunni og handritshöfundinum Holland Taylor, en Taylor er 32 árum eldri en Paulson. 

„Ef einhverjir vilja eyða einhverjum tíma í að hugsa að ég sé skrítin að elska undursamlegustu manneskjuna á plánetunni, þá er það þeirra vandamál,“ segir Paulson í viðtalinu. „Ég hef það fínt.“

Paulson sem er 43 og Taylor sem er 75 ára hafa verið saman síðan árið 2015. Þær hittust fyrst fyrir um tíu árum en þá var Paulson í öðru sambandi svo ástin beið í nokkur ár eða þangað til að þær ákváðu að fara út að borða saman. 

Paulson sló í gegn í hlutverki saksóknarans Marciu Clark í The People v. O. J. Simpson: American Crime Story. Nú leikur hún í nýjustu Ocean's-myndinni, Ocean's 8, en myndin skartar stórum hópi kvenstjarna í aðalhlutverkum. 

Sarah Paulson og Holland Taylor.
Sarah Paulson og Holland Taylor. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson