Enn og aftur hætt saman

Zayn Malik og Gigi Hadid eru ekki lengur par.
Zayn Malik og Gigi Hadid eru ekki lengur par. AFP

Fyrirsætan Gigi Hadid og tónlistarmaðurinn Zayn Malik hættu saman og byrjuðu svo aftur saman árið 2018. Þau byrjuðu hins vegar ekki árið 2019 sem par en stjörnuparið er sagt hafa hætt enn og aftur saman í byrjun nóvember. 

Samkvæmt heimildum E! hefur verið mikið að gera hjá parinu svo þau hafa ekki haft tíma fyrir hvort annað í um tvo mánuði. Hinn 25 ára gamli Zayn hefur verið að taka upp nýja tónlist að undanförnu og er sagður vera að fara að gefa út nýja plötu. Hin 23 ára Hadid sem er ein vinsælasta fyrirsæta heims er sögð hafa verið að einbeita sér að sjálfri sér að undanförnu. 

Parið gaf út yfirlýsingu í mars í fyrra þar sem þau tilkynntu um sambandsslit sín en þá höfðu þau verið saman í tvö ár. Þau byrjuðu hins vegar aftur saman þegar voraði. 

View this post on Instagram

flyin home to my happy place ❤️

A post shared by Gigi Hadid (@gigihadid) on Oct 21, 2018 at 4:59pm PDT

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Reyndu að hafa hemil á löngun þinni til að koma illa fram í dag, sama hversu innilega þú telur aðra eiga það inni hjá þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riely og Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Reyndu að hafa hemil á löngun þinni til að koma illa fram í dag, sama hversu innilega þú telur aðra eiga það inni hjá þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riely og Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg