Matthew Tan, ungur maður frá Singapúr sem er með YouTube rásina ESC Singapore var að gefa út ábreiðu af Hatrið mun sigra eftir íslensku sveitina Hatara.
Athygli vekur hversu vel hann nær íslenska textanum.
Tan hefur einmitt fengið athugasemdir við myndbandið frá hlustendum en þar segir Íslendingur, „Íslenska er mjög erfitt tungumál, framburðurinn þinn er mjög tilkomumikill.“
Hér að neðan má sjá útgáfu Matthew Tan af Hatrið mun sigra.