Vilja ekki vera gift lengur

Angelina Jolie og Brad Pitt vilja fá að vera einhleyp …
Angelina Jolie og Brad Pitt vilja fá að vera einhleyp á pappírum. mbl.is/AFP

Angelina Jolie og Brad Pitt eru enn gift á pappírum en samkvæmt heimildum The Blast styttist í að hjónin sem eru skilin að borði og sæng verði einhleyp samkvæmt lögum. Eru þau Jolie og Pitt að semja um að þau verði skráð fráskilin þótt það eigi eftir að ganga frá lausum endum. 

Hjónin tilkynntu um skilnað sinn fyrir tveimur og hálfu ári en eru enn gift. Það hefur reynst þeim erfitt að finna út úr forræði á börnum þeirra. Þó að þau verði ekki lengur löglega gift ef sátt næst um þennan samning eiga þau enn eftir að ná fullri sátt um forræðið og gera upp eignir. 

Hjónin eru sögð vilja halda áfram með líf sitt og vilja ekki lengur vera gift hvort öðru. Ástæða þess að þau vilja fá hjúskaparstöðu sinni breytt lagalega er þó ekki vegna þess að þau eru í komin í alvarleg sambönd að sögn heimildarmanns. Ástæðan er frekar sú að þau þurfa rými til þess að halda áfram tilfinningalega með sitt eigið líf. 

Kemur fram að þetta sé ekki óalgengt í Hollywood þar sem eignir eru miklar og getur verið flókið að gera allt upp. 

Angelina Jolie og Brad Pitt árið 2014.
Angelina Jolie og Brad Pitt árið 2014. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson