Guðrún Guðmundsdóttir fékk viðurkenningu á laugardaginn var fyrir að vera hundrað þúsundasti gesturinn á sýninguna Elly í Borgarleikhúsinu. Sýningin á laugardaginn var númer 212 í röðinni en nú eru aðeins átta sýningar eftir því lokasýningin verður í lok leikársins, þann 15. júní.
Það var Katrín Halldóra Sigurðardóttir, sem hefur slegið í gegn í hlutverki Ellyjar Vilhjálms, sem tilkynnti þetta í lok sýningar á laugardaginn ásamt Ragnari Bjarnasyni sem tók lagið fyrir leikhúsgesti eftir að sýningu lauk. Einnig voru mættir höfundar verksins, Ólafur Egill Egilsson og Gísli Örn Garðarsson sem er einnig leikstjóri sýningarinnar.