Brad Pitt með nýtt húðflúr og svitabletti

Brad Pitt sveittur og vel skreyttur.
Brad Pitt sveittur og vel skreyttur. mbl.is/AFP

Brad Pitt er mættur á kvikmyndahátíðina í Feneyjum með nýtt húðflúr. Nýja húðflúrið sást vel þegar kvikmyndastjarnan veifaði ljósmyndurum í stuttermabol á miðvikudaginn, þannig að svitablettirnir undir höndunum fóru ekki fram hjá neinum. 

Nýja húðflúrið er staðsett á hægri handlegg Pitts. Það er erfitt að greina húðflúrið en erlendir miðlar hafa komist að þeirri niðurstöðu að nýja húðflúrið sýni mynd af karlmanni og skugga mannsins.

Dökka línan sýnir nýjasta húðflúr Brad Pitt.
Dökka línan sýnir nýjasta húðflúr Brad Pitt. mbl.is/AFP

Húðflúrið er staðsett alveg við húðflúr sem er tileinkað fyrrverandi eiginkonu hans, Angelinu Jolie. Pitt fékk sér húðflúrið sem hann tileinkaði Jolie rétt áður en hjónin giftu sig árið 2014. Er húðflúrið byggt á rómantísku ljóði frá 14. öld. 

Þessi tvö húðflúr eru þó ekki þau einu sem Pitt er með en hann er þekktur fyrir mörg húðflúr. Nokkur þeirra sáust afar vel í Feneyjum í gær. 

Brad Pitt með nýja húðflúrið í Feneyjum.
Brad Pitt með nýja húðflúrið í Feneyjum. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þótt þú sért skipulagður sjálfur geturðu ekki ætlast til að aðrir séu eins. Vandamálin geta vel verið fyrir hendi, þótt enginn sjá þau nema þú.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Sólveig Pálsdóttir
3
Moa Herngren
4
Ragnar Jónasson
5
Jojo Moyes
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þótt þú sért skipulagður sjálfur geturðu ekki ætlast til að aðrir séu eins. Vandamálin geta vel verið fyrir hendi, þótt enginn sjá þau nema þú.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Sólveig Pálsdóttir
3
Moa Herngren
4
Ragnar Jónasson
5
Jojo Moyes