Tónlistarkonan Salka Sól segir í færslu á Twitter að hún hafi ekki rappað í langan tíma eftir að uppistandari sagði að rappið hennar væri það versta sem hefði komið fyrir íslenska menningu. Hún segist ekki hafa viljað viðurkenna hvað þessi gagnrýni risti djúpt.
Ég þorði ekki að viðurkenna hvað ég varð í raun sár yfir þessum ummælum og vildi að ég hefði verið sterkari á þessum tíma og bara leitt þetta framhjá mér.
— Salka Sól Eyfeld (@salkadelasol) September 18, 2019
Salka er í hljómsveitunum Amabadama og Reykjavíkurdætrum. Reykjavíkurdætur hafa látið í sér heyra síðustu daga eftir að uppistandarinn Anna Svava gerði grín að þeim í upphitun sinni fyrir uppistand Björns Braga Arnarssonar. Steiney Skúladóttir, liðskona sveitarinnar, vakti athygli á ummælum Önnu Svövu á Twitter.
Það er verið að bóka okkur á festivöl um allan heim, spila okkur á útvarpsstöðvum eins og BBC og við vorum að vinna verðlaunin besta up and coming hip hop band í Evrópu. Það er pjúra bara Ísland sem vill ekki sjá okkur. Þetta er svo ljótt kynjamisrétti að ég á ekki orð
— Steiney Skúladóttir (@steiney_skula) September 17, 2019