Sauðfjárbóndi hlaut bókmenntaverðlaun

Harpa Rún Kristjánsdóttir hlaut í dag Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar fyrir …
Harpa Rún Kristjánsdóttir hlaut í dag Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar fyrir ljóðahandritið Eddu. mbl.is/Árni Sæberg

Harpa Rún Kristjánsdóttir hlaut í dag Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar fyrir ljóðahandritið Eddu. Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri, veitti Hörpu verðlaunin sem nema 800 þúsund krónum. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Reykjavíkurborg.

Í niðurstöðu dómnefndar segir að um sé að ræða látlaust verk „um dramatískustu andartök hverrar mannsævi; upphaf hennar og endi. Í bókinni fylgist ljóðmælandi með nýju lífi kvikna er annað fjarar út. Klemmdur milli upphafs og endis, nýkviknaðs lífsneista og kulnaðs báls, kemur hann auga á hliðstæður. Ljóðin ferðast milli fyrstu augnablika lífsins til þeirra síðustu. Bjargarleysi barnsins kallast á við vanmátt og minnisleysi elliáranna. Orðin er og var eru bergmál sem kasta milli sín treganum. Gleðin og sorgin takast á, tvinnast saman og verða loks eitt. Því rétt eins og Eddurnar tvær sem bókin fjallar um – sú unga og sú aldna – hefði önnur ekki orðið til án hinnar.“

Í ljóðum Eddu má greina sátt við gang lífsins þótt hann sé sársaukafullur, að því er fram kemur í fréttatilkynningu.

„Edda er heillandi og hófstillt verk þar sem hugsanir um æsku og elli fléttast saman, vega salt. Þræðirnir bindast og mynda vef sem sýnir okkur í nýju ljósi svo margt sem við þóttumst vita.“

Bókmenntafræðingur og sauðfjárbóndi

Harpa Rún er fædd árið 1990.

„Hún lauk meistaraprófi í almennri bókmenntafræði frá Háskóla Íslands árið 2018 og fjallaði lokaritgerð hennar um íslenskar ólandssögur eða staðleysur og þróun þeirra. Harpa Rún er uppalin í sveit undir Heklurótum og býr þar enn og starfar á sauðfjárbúi. Hún er einnig lausakona í ritstjórn og prófarkalestri.“

Harpa hefur áður sent frá sér ljóð. Þau ljóð birtust í tveimur ljósmyndabókum á íslenski og ensku. Jafnframt hafa ljóð Hörpu birst í tímaritum. Edda er fyrsta ljóðabók Hörpu, hún kemur út í dag hjá bókaútgáfunni Sæmundi. 

„Alls bárust 58 óbirt ljóðahandrit í samkeppnina undir dulnefni. Dómnefndina skipuðu Sif Sigmarsdóttir formaður, Þórarinn Eldjárn og Börkur Gunnarson“, segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson