Hvar var Mette-Marit?

Hákon og Mette-Marit í Þýskalandi um miðjan október. Mette-Marit fór …
Hákon og Mette-Marit í Þýskalandi um miðjan október. Mette-Marit fór ekki til Japan með Hákoni. AFP

Hákon Noregskrónprins mætti án eiginkonu sinnar, Mette-Marit, þegar nýr Japanskeisari var krýndur á þriðjudaginn. Mette-Marit hefur þurft að draga úr störfum sínum vegna veikinda sem hún glímir við. 

Hákon og Mette-Marit voru bæði í Þýskalandi í síðustu viku þar sem þau voru meðal annars viðstödd bókamessuna í Frankfurt. Samkvæmt hinu norska Séð og heyrt þurfti Hákon að hlaupa í skarðið fyrir konu sína en þó ekki fyrr en síðustu dagana. Mette-Marit afboðaði sig einnig á viðburð í Noregi í síðustu viku. 

Hákon mætti án eiginkonu sinnar, Mette-Marit, til Japan.
Hákon mætti án eiginkonu sinnar, Mette-Marit, til Japan. AFP

Ár er síðan krónprinsessan greindi frá því að hún væri með krónískan lungnasjúkdóm. Hefur hún þess vegna þurft að taka því rólegar en áður. Er það líklega ástæða þess að hún fór ekki með eiginmanni sínum til Japan. 

Mette-Marit talaði við fjölmiðla á ferð sinni um Þýskaland á dögunum að því er fram kemur á vef breska miðilsins Express. Sagði hún meðal annars að hún yrði úrvinda af þreytu fyrr en áður og þyrfti að hugsa betur um sjálfa sig en áður. Líf hennar er rólegra en áður sem hún sagði jákvætt við veikindin. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson