„Naglhaltu kjafti, helvítið þitt," sagði Helgi Seljan við Heimi Má Pétursson þegar sá hinn síðarnefndi rak hann úr starfi sínu á NFS á hans fyrsta degi.
Allt er gott sem endar vel og í meðfylgjandi myndskeiði greinir Helgi frá því.
Helgi segir frá þessum leiðindum og mörgu öðru í einlægu viðtali við Loga Bergmann Eiðsson í næsta þætti af Með Loga. Þátturinn verður kominn í Sjónvarp Símans Premium á fimmtudaginn og sýndur sama dag í opinni dagskrá í Sjónvarpi Símans klukkan 20.10.