Íslenska kvikmyndin Hvítur, hvítur dagur vann til þrennra verðlauna á hinni virtu Torino-kvikmyndahátíð á Ítalíu um helgina.
Hátíðin var haldin í 37. sinn frá 22.-30. nóvember og var klippari myndarinnar, Julius Krebs Damsbo, viðstaddur hátíðina og tók á móti verðlaununum fyrir hönd myndarinnar.
Kvikmyndin vann aðalverðlaun hátíðarinnar og þar með verðlaunafé að upphæð 18.000 evrur eða um það bil 2,4 milljónir íslenskra króna.
Einnig vann kvikmyndin AVANTI!-verðlaunin sem gefa henni betri dreifingu á Ítalíu, og sérstaka dómnefndarviðurkenningu fyrir besta handrit.
Hvítur, hvítur dagur er þar með komin upp í tólf verðlaun frá frumsýningu sinni í Cannes. Mikið ferðalag er einnig framundan hjá myndinni en hún kom nýlega í kvikmyndahús í Noregi og Sviss og sýningar hefjast í Danmörku 5. desember næstkomandi.