Ekki fíkniefni heldur veikindi

Justin Bieber er í meðferð við lyme-sjúkdómnum og krónískri veirusýkingu.
Justin Bieber er í meðferð við lyme-sjúkdómnum og krónískri veirusýkingu. AFP

Kanadíski tónlistarmaðurinn Justin Bieber er með lyme-sjúkdóminn en bakterían berst í fólk eftir bit skógarmítils þegar hann nærist á blóði. Bieber greindi frá þessu á Instagram og þar segir hann að undanfarin ár hafi verið erfið. Hann glímir einig við króníska veirusýkingu.

Justin Bieber segist vita af umræðunni á samfélagsmiðlum þar sem orðrómur er um að hann glími við fíkniefnavanda eftir að myndir birtust af honum þar sem hann leit illa út. Eða eins og fólk á að hafa haldið fram að hann liti út eins og hann væri á metamfetamíni. „En þau gerðu sér ekki grein fyrir því að ég hafði nýlega verið greindur með lyme-sjúkdóminn, ekki aðeins það heldur króníska veirusýkingu sem hefur áhrif á húð mína, starfsemi heilans, orku og heilsufarið almennt.“

Að sögn Bieber fær hann góða meðferð við veikindunum og sé að hafa betur í baráttunni. Alls eru fylgjendur hans 124 milljónir talsins á Instagram. „Ég sný aftur og verð betri en nokkru sinni fyrr.“

Frétt BBC

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson