Theron lýsti versta stefnumóti lífs síns

Charlize Theron fékk undarlega beiðni á stefnumóti þegar hún var …
Charlize Theron fékk undarlega beiðni á stefnumóti þegar hún var á þrítugsaldri. AFP

Óskarsverðlaunaleikkonan Charlize Theron rifjaði upp versta stefnumót sem hún hefur farið á í þætti Jimmy Kimmel í vikunni. Stefnumótið byrjaði vel en þegar hún og myndarlegi maðurinn fóru að kyssast kom hann upp um sig. 

Theron sem er 44 ára í dag segist hafa verið á þrítugsaldri þegar hún fór á stefnumótið. 

„Hann keyrði upp að húsinu mínu og við byrjuðum að kyssast og það var mjög gott. Svo færði hann sig og hvíslaði: „Kelaðu við nefið á mér“,“ sagði Theron um undarlegt blæti mannsins. 

Kimmel var í áfalli og vildi fá staðfestingu á því sem hann hafði heyrt Theron segja. Theron átti þó afar bágt með að segja frá þessu aftur þar sem hún var byrjuð að gráta úr hlátri. 

„Ég hef ekki gleymt þessu af því ég hef enn ekki hitt aðra manneskju sem finnst gott að láta kyssa nef sitt,“ sagði Theron og segir manninn ekki hafa verið að grínast. 

Þar sem stefnumótið hafði gengið vel þangað til beiðnin um nebbakeleríið kom fram kunni Theron ekki við annað en að kyssa manninn stutt á nefið. 

Hér má sjá Theron segja frá stefnumótinu. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson