Friðrik krónprins Danmerkur lét ekki smá skíðaslys á sig fá og hefur sinnt störfum undanfarna daga í fatla. Greint var frá því í síðustu viku að prinsinn hefði þurft að gangast undir minni háttar aðgerð vegna meiðsla sem hann varð fyrir á skíðum í Sviss.
Friðrik hefur verið iðinn við störf sín síðan hann útsrkifaðist af spítalanum. Hann vígði nýjan spítala á fimmtudaginn í fatla. Á föstudaginn skoðaði hann svo nýja veislustóla en verið er að skipta út veislustólum í höllinni.
Friðrik er ekki feiminn með fatlann. Hefur hann bæði verið í fatlanum yfir jakkafatajakka sem og undir jakkafatajakka eins og sjá má á myndum hér að neðan sem danska konungsfjölskyldan birti á Instagram.
View this post on InstagramA post shared by DET DANSKE KONGEHUS (@detdanskekongehus) on Feb 20, 2020 at 7:49am PST