„Ég hef aldrei átt stórar summur í banka,” segir einn farsælasti kvikmyndaframleiðandi Íslands, Sigurjón Sighvatsson, í viðtali við Loga Bergmann Eiðsson í næsta þætti af Með Loga.
„Ég er hvatvís og peningarnir hafa aldrei verið markmið.”
Hann segir enn fremur að viðskiptaumhverfið í Bandaríkjunum hafi hentað honum einstaklega vel.
Þátturinn kemur í Sjónvarp Símans Premium á fimmtudag og verður sýndur sama dag línulegri dagskrá kl. 20:10.