Ítalski óperusöngvarinn Andrea Bocelli greindi frá því í ítölskum fjölmiðlum nýlega að hann hefði smitast af kórónuveirunni. Bocelli segir að öll fjölskylda sín hafi veikst en þau séu nú búin að ná sér.
„Öll fjölskyldan smitaðist. Við vorum öll með hita, sem betur ekki háan, og hnerruðum og hóstuðum. Ég þurfti að aflýsa fyllt af tónleikum. Mér leið eins og þetta væri martröð þar sem ég hafði ekki stjórn á hlutunum. Ég vonaðist til að vakna á hverri stundu,“ sagði Bocelli í tilkynningu til hins ítalska La Stampa.
Bocelli hefur gefið blóðvöka til rannsóknar á kórónuveirunni.
Óljóst er hvenær Bocelli veiktist af veirunni en hann hélt einkatónleika á páskadag, 13. apríl, í dómkirkjunni í Mílanó. Tónleikunum var streymt beint á netinu og hlýddu milljónir á sönginn.