Þó að flestir myndasöguaðdáendur þekki Chris Evans best sem Kaptein Ameríku er það ekki fyrsta ofurhetjan sem hann leikur. Árið 2005 lék hann Mannlega blysið (e. Human Torch) í myndinni Fantastic Four og framhaldsmynd hennar sem kom út árið 2007.
„Þá var þetta ofurhetjudæmi bara rétt að byrja,“ segir Evans við hlaðvarp Hollywood Reporter. „Kærastan var nýbúin að hætta með mér og ég þurfti á þessu að halda!“
Líklega ekki slæm ákvörðun miðað við stefnuna sem ferillinn hefur tekið síðan.