Húsleit gerð á heimili YouTube-stjörnu

Bandaríska Youtube-stjarnan Jake Paul.
Bandaríska Youtube-stjarnan Jake Paul. AFP

Bandaríska alríkislögreglan hefur gert húsleit á heimilli bandarísku YouTube-stjörnunnar Jakes Pauls í Los Angeles í Kaliforníu. 

Fram kemur á BBC að vopnað sérsveitarlið hafi framkvæmt húsleitina sem fór fram þegar Paul var ekki heima. 

Ekki er vitað hvers vegna húsleitin fór fram, en talsmaður alríkislögreglunnar segir að hún tengist rannsókn lögreglunnar. Á myndbandi má sjá sérsveitarmenn bera skotvopn frá heimili Pauls. 

Paul á yfir höfði sér ákæru í Arizonaríki vegna þjófnaðar ásamt því að hann hélt nýlega samkomu sem talið er að brjóti gegn tilmælum vegna kórónuveirufaraldursins. 

Paul, sem er 23 ára, hefur yfir 20 milljón fylgjendur á Youtube. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Samræður við stjórnendur, foreldra og yfirboðara eru beinskeyttar og ákafar í dag. Alls kyns spennandi tækifæri til vaxtar eru fyrir hendi núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Ragnar Jónasson
3
Sólveig Pálsdóttir
4
Moa Herngren
5
Jojo Moyes
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Samræður við stjórnendur, foreldra og yfirboðara eru beinskeyttar og ákafar í dag. Alls kyns spennandi tækifæri til vaxtar eru fyrir hendi núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Ragnar Jónasson
3
Sólveig Pálsdóttir
4
Moa Herngren
5
Jojo Moyes