Ráðherrann tilnefnd til evrópsku ljósvakaverðlaunanna PRIX Europa

Ráðherrann er tilnefnd til evrópsku ljósvakaverðlaunanna PRIX Europa
Ráðherrann er tilnefnd til evrópsku ljósvakaverðlaunanna PRIX Europa Ljósmynd/Aðsend

Sjónvarpsþáttaröðin Ráðherrann sem framleidd er af Sagafilm er tilnefnd til evrópsku ljósvakaverðlaunanna PRIX Europa sem besta leikna sjónvarpsefnið. PRIX Europa verðlaunin eru ein stærstu sinnar tegundar í Evrópu og tilnefningin því mikið fagnaðarefni.  

RÚV hefur sýningar á þáttaröðinni sunnudaginn 20. september. Ráðherrann fjallar um Benedikt Ríkarðsson, óhefðbundinn stjórnmálamann sem kemur eins og stormsveipur inn í íslensk stjórnmál með óvenjulegri nálgun í kosningabaráttu flokks síns. Eftir að hann kemst til valda fara einkenni geðhvarfa að koma fram í fari hans og hegðun.  

Ólafur Darri Ólafsson fer með hlutverk ráðherrans en með önnur stór hlutverk í þáttunum fara Aníta Briem, Þuríður Blær Jóhannsdóttir og Þorvaldur Davíð Kristjánsson. 

Leikstjórn var í höndum Nönnu Kristínar Magnúsdóttur og Arnórs Pálma Arnarsonar en handrit skrifuðu Birkir Blær Ingólfsson, Björg Magnúsdóttir og Jónas Margeir Ingólfsson. Ásgrímur Guðbjartsson stýrði kvikmyndatökunni og Kjartan Holm samdi tónlistina í þáttunum. Framleiðendur eru Anna Vigdís Gísladóttir, Hilmar Sigurðsson og Kjartan Þór Þórðarson. 

Þáttaröðin er framleidd í samstarfi við RÚV, Cineflix Rights sem dreifir þáttunum á heimsvísu, DR, NRK, SVT, YLE, Lumiere, Kvikmyndamiðstöð Íslands, Nordisk Film and TV Fund og MEDIA Creative Europe og nýtur endurgreiðslu atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson