„Ég þarf að hreinsa mannorð mitt“

Rebekah Vardy og Coleen Rooney mætast í dómsal.
Rebekah Vardy og Coleen Rooney mætast í dómsal. Samsett mynd

Fótboltafrúin Rebekah Vardy útskýrði í breskum morgunþætti af hverju hún ákvað að fara með mál sitt gegn Coleen Rooney fyrir dóm. Fótboltafrúin Coleen Rooney sakaði Vardy í fyrra um að leka sögum um sig í breska miðilinn The Sun. 

„Við reyndum að leysa úr þessu á góðum nótum en það gekk ekki. Mér skilst að fólki finnist það fáránlegt en hvað átti ég að gera?“ sagði Vardy í þættinum að því er fram kemur á vef The Sun. „Ég þarf að hreinsa mannorð mitt, mig langar að hreinsa mannorð mitt. Ég mun gera allt sem í mínu valdi stendur og vona að þetta leysist sem fyrst.“ 

Vardy sagði að málið hefði tekið gríðarlega mikið á. Þó væri ekki hægt að bera það saman við það sem fólk hefði gengið í gegnum vegna kórónuveirunnar. 

Rebekah Vardy er gift knattspyrnumanninum Jamie Vardy en frú Rooney er gift knattspyrnumanninum Wayne Rooney.

Jamie Vardy.
Jamie Vardy. AFP
Wayne Rooney.
Wayne Rooney. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson