Kvikmyndahátíðinni í Cannes í Frakklandi hefur verið frestað þangað til í júlí vegna útbreiðslu kórónuveirunnar.
Skipuleggjendur hátíðarinnar greindu frá þessu.
Hún átti að fara fram í maí næstkomandi eins og venjan er en ákveðið var að fresta henni um tvo mánuði. Til stendur að hún fari fram dagana 6. til 17. júlí.
Hátíðinni var einnig frestað í fyrra. Til stóð að halda hana síðar á árinu en ekkert varð af því vegna veirunnar