Gifti sig eftir stutt samband

Lena Dunham.
Lena Dunham. AFP

Girls-stjarnan Lena Dunham og tónlistarmaðurinn Luis Felber gengu í hjónaband um helgina. Heimildarmenn hafa staðfest við erlenda miðla að brúðkaupið hafi átt sér stað en talsmaður leikkonunnar hefur ekki viljað tjá sig. 

Hjónin eru bæði 35 ára en í vor bárust fréttir af sambandi þeirra. Dunham hafði afskrifað karlmenn í upphafi árs. „Þetta hafa verið nokkrir mánuðir. Mér finnst ég heppin,“ sagði Dunham í apríl og kallaði Felber bestu manneskju sem hún hefði hitt. 

Dunham hefur lýst Felber sem kraftaverki og er óhrædd að tjá sig um ástina á samfélagsmiðlum. Í júní skrifaði Dun­ham ástaróð til Fel­bers á Twitter. Hún sagði hann búa til frá­bært pasta þegar hún væri veik, horfa á gamla þætti með henni og fara út með hund­inn. Þessi orð eru al­gjör þver­sögn við fyrri yf­ir­lýs­ing­ar henn­ar en í janú­ar líkti Dun­ham karl­mönn­um við bauna­rétt. „Það sem ég er að segja krakk­ar; ekki hætta áður en krafta­verkið verður að veru­leika,“ tísti Dun­ham. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson