Gossip Girl-stjarnan Jessica Szohr er trúlofuð barnsfaðir sínum, íshokkíleikmanninum Brad Richardson. Leikkonan greindi frá trúlofuninni á Instagram-síðu sinni og sýndi aðdáendum sínum demantshringinn sem unnustinn gaf henni.
„Ég sagði já,“ skrifaði Szhohr í sjöunda himni á samfélagsmiðlinum.
Parið byrjaði greindi frá sambandi sínu árið 2019 og í janúar 2021 eignuðust þau sitt fyrsta barn saman. Nú leikur lukkan enn frekar við þau og stefna þau upp að altarinu innan tíðar.
Szohr, sem er 37 ára, er hvað þekktust fyrri hlutverk sitt í unglingaþáttunum Gossip Girl þar sem hún fór með hlutverk Vanessu Abrams.