Skilnaðarlögfræðingurinn Samantha Spector hefur óskað eftir því að láta af störfum sem lögmaður fjöllistamannsins Kanye West í skilnaði hans við Kim Kardahsian.
Spector var fjórði lögfræðingurinn hefur varið hagsmuni West í skilnaðinum en hann rak síðasta lögfræðing, Chris Melcher.
Á meðan West leitar að nýjum skilnaðarlögfræðingi munu aðrir lögmenn hans sjá um málaferlin, þó þeir séu ekki sérhæfðir til þess.
Spector tilgreindi ekki ástæðu uppsagnarinnar annað en að samband milli hennar og skjólstæðings hennar væri ekki gott.
West og Kardashian hafa staðið í skilnaði sínum vel á annað ár.