Ætlar ekki að kynna Óskarinn aftur

Chris Rock var kynnir á Óskarsverðlaunahátíðinni í mars.
Chris Rock var kynnir á Óskarsverðlaunahátíðinni í mars. AFP/ Neilson Barnard

Grínistinn Chris Rock segist hafa hafnað boði um að vera kynnir á Óskarsverðlaunahátíðinni á næsta ári. Þetta kom fram í uppistandi sem Rock hélt í Arizona, Bandaríkjunum síðustu helgi.

Fæstir hafa gleymt löðrungnum fræga sem leikarinn Will Smith gaf Chris Rock á Óskarsverðlaunahátíðinni í mars. Á vef Arizona Republic kemur fram að í uppistandinu hafi Rock sagt endurkomu sem kynnir á Óskarsverðlaununum vera eins og að snúa aftur á vettvang glæps.

Rock var einnig kynnir á hátíðinni árin 2005 og 2016, en hann segir löðrunginn hafa haft mikil áhrif á sig og hann hafi hafnað boði um að koma fram í Super Bowl auglýsingu í kjölfar löðrungsins. Það er því ljóst að Rock þarf lengri tíma til að jafna sig áður en hann snýr aftur á svið sem kynnir. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson