„Allt í lagi“ með Jay Leno

Banda­ríski spjallþátta­stjórn­and­inn Jay Leno.
Banda­ríski spjallþátta­stjórn­and­inn Jay Leno. AFP/Adrian Sanchez-Gonzalez

Banda­ríski spjallþátta­stjórn­and­inn Jay Leno sagði í yfirlýsingu að það sé „allt í lagi“ með hann en fyrr í kvöld var greint frá því að Leno væri á sjúkra­húsi vegna al­var­legra bruna­sára sem hann hlaut á and­liti og höndum.

„Ég fékk alvarleg brunasár er eldur kviknaði í bensíni. Ég Þarf bara viku eða tvær til að komast aftur á fætur,“ sagði Leno.

Talsmaður sjúkrahússins sem Leno er nú á sagði í yfirlýsingu að Leno vilji að allir viti „að ástand hans er stöðugt og verið sé að meðhöndla áverkana“ sem hann fékk í bílskúrnum sínum á laugardag. Leno er mikill bílaáhugamaður og er talið að hann eigi fleiri en 180 farartæki. 

„Hann er í góðu skapi og er snortinn vegna allra fyrirspurnanna um ástand sitt og velfarnaðaróska [og] vill láta alla vita að honum vegnar vel.“

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson