Mynd Elfars verðlaunuð í Santa Barbara

Elfar Aðalsteins, leikstjóri og handritshöfundur og eiginkona hans, Anna María …
Elfar Aðalsteins, leikstjóri og handritshöfundur og eiginkona hans, Anna María Pitt, sem leikur eitt af aðalhlutverkunum í myndinni, voru viðstödd hátíðina og veittu verðlaununum viðtöku. mbl.is/Ásdís Ásgeirsdóttir

Sumarljós og svo kemur nóttin var um síðastliðna helgi verðlaunuð sem besta norræna kvikmyndin á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Santa Barbara sem haldin var með pompi og prakt í síðustu viku.

Elfar Aðalsteins, leikstjóri og handritshöfundur og eiginkona hans, Anna María Pitt, sem leikur eitt af aðalhlutverkunum í myndinni, voru viðstödd hátíðina og veittu verðlaununum viðtöku.

„Það er mikill heiður fyrir okkur að vera verðlaunuð á þessari glæsilegu gamalgrónu hátíð og að fá svona innilegar viðtökur frá áhorfendum var alveg yndislegt. Þetta gefur okkur mikinn meðbyr við kynningu og dreifingu á myndinni erlendis,“ sagði Elfar er hann tók við verðlaununum.

Sannkallaður stjörnufans var á hátíðinni og voru meðal annars leikararnir Cate Blanchett, Jamie Lee Curtis, Colin Farrell og Brendan Gleeson verðlaunuð ásamt leikstjórunum Martin McDonagh og Darren Aronofsky, svo einhverjir séu nefndir.

Myndin byggist á samnefndri skáldsögu eftir Jón Kalman Stefánsson og var frumsýnd á Íslandi í október 2022.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn býður upp á nýjar hugmyndir og ferska orku. Taktu frumkvæði og haltu áfram að treysta á innsæið. Þú getur breytt gangi mála með einlægu viðhorfi.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Hugrún Björnsdóttir
2
Torill Thorup
3
Ragnheiður Jónsdóttir
4
Eva Björg Ægisdóttir
5
Anna Rún Frímannsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn býður upp á nýjar hugmyndir og ferska orku. Taktu frumkvæði og haltu áfram að treysta á innsæið. Þú getur breytt gangi mála með einlægu viðhorfi.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Hugrún Björnsdóttir
2
Torill Thorup
3
Ragnheiður Jónsdóttir
4
Eva Björg Ægisdóttir
5
Anna Rún Frímannsdóttir