Leikkonan Megan Fox og rapparinn Machine Gun Kelly virðast loksins hafa sæst, en þau mættu saman í kynningarpartí sundfatatímaritsins Sports Illustrated á dögunum eftir stormasama mánuði.
Í febrúar síðastliðnum fóru sögusagnir á kreik um sambandsslit parsins eftir að Kelly var sakaður um að hafa haldið fram hjá Fox með gítarleikaranum Sophie Lloyd. Í kjölfarið hætti leikkonan að fylgja Kelly á samfélagsmiðlum, eyddi öllum myndum af þeim saman og lokaði svo Instagram-reikningi sínum.
Í gær, fimmtudag, mættu Fox og Kelly saman á viðburð sundfatatímaritsins Sports Illustrated, en Fox prýðir forsíðu tímaritsins. Leikkonan stal senunni þegar hún mætti í partíið í kynþokkafullum svörtum kjól á meðan Kelly klæddist kremlituðu jakkafötum.
Þetta var í fyrsta sinn sem partið lætur sjá sig saman eftir meint sambandsslit og framhjáhald, en það vakti mikla athygli þegar Kelly fagnaði 33 ára afmæli sínu í lok apríl án Fox.
Þrátt fyrir að hafa mætt saman á viðburðinn sást hvergi glitta í trúlofunarhring Fox, en Kelly fór á skeljarnar í janúar síðastliðnum og bað Fox rétt áður en framhjáhaldsskandallinn kom upp.