Lana Del Rey tók vakt á Waffle House

Söngkonan sat fyrir myndum með aðdáendum.
Söngkonan sat fyrir myndum með aðdáendum. Samsett mynd

Söngkonan Lana Del Rey vakti mikla athygli í Alabama á dögunum, en söngkonan lagði hljóðnemann frá sér til þess að hella upp á kaffi og taka við matarpöntunum gesta Waffle House. Það er vinsæll matsölustaður víðsvegar um Bandaríkin.

Rey sinnti ýmsum verkefnum og vann bæði á bak við afgreiðsluborðið og í matsalnum ásamt því að sitja fyrir myndum með aðdáendum. 

Starfsmaður mánaðarins

Myndir af söngkonunni í þjónustubúningnum fóru á flug á samfélagsmiðlum og sem fyrr létu viðbrögðin ekki á sér standa. „Starfsmaður mánaðarins á Waffle House: Lana Del Rey,“ tístu netverjar. 

Rey er ein farsælasta söngkona síðari tíma og kom nýverið fram á uppseldum tónleikum í Hyde Park í Lundúnum.

Fulltrúar söngkonunnar hafa ekki svarað fyrirspurnum fjölmiðla varðandi starfsdag söngkonunnar á matsölustaðnum, en Rey hafði áður lýst því yfir að hún væri áhugasöm um að auka færni sína og kynna sér aðra starfsmöguleika.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Fyrr eða síðar munu öll kurl koma til grafar og því engin ástæða til þess að vera að herða á hlutunum. Leggðu þitt af mörkum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riely og Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Fyrr eða síðar munu öll kurl koma til grafar og því engin ástæða til þess að vera að herða á hlutunum. Leggðu þitt af mörkum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riely og Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg