Í sjóðheitum sleik á Beyoncé tónleikum

Kylie Jenner og Timothée Chalamet hafa verið að stinga saman …
Kylie Jenner og Timothée Chalamet hafa verið að stinga saman nefjum frá því í apríl. Samsett mynd

Netheimar loguðu síðastliðið vor þegar fregnir bárust af því að raunveruleikastjarnan Kylie Jenner og leikarinn Tomothée Chalamet væru að stinga saman nefjum. Í sumar var hins vegar greint frá því að sambandið væri ekki alvarlegt, en nú virðist það hafa breyst.

Jenner og Chalamet komu öllum á óvart og mættu á fyrsta opinbera viðburðinn saman í vikunni. Þau fóru á Beyoncé tónleika þar sem þau virtust skemmta sér vel og voru ekkert að fela rómantíkina. Myndir af sjóðheitum sleik þeirra birtust á vef Daily Mail, en þá hafa ýmis myndskeið og myndir af þeim einnig verið í dreifingu á samfélagsmiðlum.

Meint ástarsamband parsins hófst nokkrum mánuðum eftir sambandsslit Jenner og barnsföður hennar, rapparans Travis Scott, en þau eiga tvö börn saman, þau Stormi og Aire. Jenner og Scott höfðu verið sundur og saman í mörg ár, en þau byrjuðu saman árið 2017 eftir að hafa kynnst á Coachella-tónlistarhátíðinni.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú hefur legið í dvala allt of lengi svo nú er komið að því að láta hendur standa fram úr ermum. Gefðu þér tíma til að sinna ungum sem öldnum í fjölskyldunni.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riley og Lucinda Riely
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú hefur legið í dvala allt of lengi svo nú er komið að því að láta hendur standa fram úr ermum. Gefðu þér tíma til að sinna ungum sem öldnum í fjölskyldunni.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riley og Lucinda Riely
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg