Fullkomið fermingarhár sem helst allan daginn

Hártrix Baldurs | 20. mars 2021

Fullkomið fermingarhár sem helst allan daginn

Hárgreiðslumeistarinn Fía Ólafsdóttir sem starfar hjá hárheildsölunni Bpro sýnir hér hvernig hægt er að framkalla fallega hárgreiðslu heima. Hún fékk Lilju Karitas Pétursdóttur og Maríu Íseyju Jónasdóttur til að sitja fyrir. Fermingarhárið verður einstaklega fallegt með aðferðum Fíu. 

Fullkomið fermingarhár sem helst allan daginn

Hártrix Baldurs | 20. mars 2021

Fía Ólafsdóttir hefur hendur í hári Lilju Karitas Pétursdóttur.
Fía Ólafsdóttir hefur hendur í hári Lilju Karitas Pétursdóttur. mbl.is/Árni Sæberg

Hárgreiðslumeistarinn Fía Ólafsdóttir sem starfar hjá hárheildsölunni Bpro sýnir hér hvernig hægt er að framkalla fallega hárgreiðslu heima. Hún fékk Lilju Karitas Pétursdóttur og Maríu Íseyju Jónasdóttur til að sitja fyrir. Fermingarhárið verður einstaklega fallegt með aðferðum Fíu. 

Hárgreiðslumeistarinn Fía Ólafsdóttir sem starfar hjá hárheildsölunni Bpro sýnir hér hvernig hægt er að framkalla fallega hárgreiðslu heima. Hún fékk Lilju Karitas Pétursdóttur og Maríu Íseyju Jónasdóttur til að sitja fyrir. Fermingarhárið verður einstaklega fallegt með aðferðum Fíu. 

Lilja Karitas Pétursdóttir skartar fallegri hárgreiðslu.

„Ég krullaði hana gróflega með Rod 10-krullujárni frá HH Simonsen. Þegar ég var búin að krulla hárið tók ég tvo grófa lokka hvorn sínum megin við andlitið. Ég sneri upp á þá og setti litla teygju í hárið til að halda því. Til þess að gera taglið fallegt tók ég lítinn lokk og vafði utan um teygjuna,“ segir Fía þegar hún er spurð út í hárgreiðslu Lilju Karitasar.

Til þess að hárið haldist út daginn notaði Fía rétt efni í hárið.

„Ég notaði í hana Label.m Heat Mist, sem er hitasprey. Það er nauðsynlegt til þess að verja hárið því krullujárnið verður mjög heitt. Ég notaði líka Davines More Inside serum sem nærir hárið og að lokum úðaði ég Davines More Inside Medium Hairspray, svo greiðslan héldist í marga klukkutíma,“ segir Fía.

Fía notar hárprey frá label.m.
Fía notar hárprey frá label.m. mbl.is/Árni Sæberg
Hér sést hvernig hárið á Lilju Karitas lítur úr eftir …
Hér sést hvernig hárið á Lilju Karitas lítur úr eftir að Fía krullaði það og tók það frá andlitinu. mbl.is/Árni Sæberg

Um hárgreiðslu Maríu Íseyjar Jónasdóttur segir Fía:

„Ég krullaði hana með Rod 9-krullujárni frá HH Simonsen. Ég sneri upp á hárið hvorum megin að framan og tyllti því með spennu. Ég notaði í hana Label.m Heat Protection Mist, Davines More Inside Medium Hold Hairspray og Davines More Inside Shimmering mist.“

María Ísey Jónasdóttir er glæsileg með krullað hár sem tekið …
María Ísey Jónasdóttir er glæsileg með krullað hár sem tekið er frá andlitinu. mbl.is/Árni Sæberg
mbl.is