Nýstárlegur morgungrautur með haustívafi

Uppskriftir | 24. október 2023

Langar ykkur að prófa nýstárlegan morgungraut með haustívafi? Hér er Kristjana Steingrímsdóttir heilsukokkur með meiru, ávallt kölluð Jana, komin með nýja gerð af morgungraut með haustlegum kryddum, perum og möndlum. Stundum er gaman að prófa nýjar útfærslur og leika sér með nýja samsetningar og Jana er hér með frábæra útkomu. Grauturinn er með kardimommu, perum, möndlu-kínóa og fleira góðgæti og nú er bara að prófa. Hægt er að fylgjast með Jönu hér á Instagram.

Nýstárlegur morgungrautur með haustívafi úr smiðju Jönu heilsukokks.
Nýstárlegur morgungrautur með haustívafi úr smiðju Jönu heilsukokks. Ljósmynd/Jana

Langar ykkur að prófa nýstárlegan morgungraut með haustívafi? Hér er Kristjana Steingrímsdóttir heilsukokkur með meiru, ávallt kölluð Jana, komin með nýja gerð af morgungraut með haustlegum kryddum, perum og möndlum. Stundum er gaman að prófa nýjar útfærslur og leika sér með nýja samsetningar og Jana er hér með frábæra útkomu. Grauturinn er með kardimommu, perum, möndlu-kínóa og fleira góðgæti og nú er bara að prófa. Hægt er að fylgjast með Jönu hér á Instagram.

Langar ykkur að prófa nýstárlegan morgungraut með haustívafi? Hér er Kristjana Steingrímsdóttir heilsukokkur með meiru, ávallt kölluð Jana, komin með nýja gerð af morgungraut með haustlegum kryddum, perum og möndlum. Stundum er gaman að prófa nýjar útfærslur og leika sér með nýja samsetningar og Jana er hér með frábæra útkomu. Grauturinn er með kardimommu, perum, möndlu-kínóa og fleira góðgæti og nú er bara að prófa. Hægt er að fylgjast með Jönu hér á Instagram.

Morgungrautur með kardimommu, perum og möndlu-kínóa

  • 2 bollar soðið kínóa (ég sýð oft slatta og á inni í ísskáp í lokuðu boxi og blanda í salöt, súpur og þennan graut)
  • ½ bolli kókosmjólk
  • ½  bolli vatn
  • ½ tsk. kardimommuduft
  • ½ tsk. kanill
  • ¼ ½ tsk. engiferduft
  • Smá salt
  • Smá vanilla
  • 4 steinlausar döðlur skornar í litla bita
  • ¼ pera skorin í bita
  • 3 msk. möndluflögur ristaðar
  • Nokkur frosin ber til að skreyta með ef vill
  • Jógúrt eða skyr til að setja með í lokin ef vill

Aðferð:

  1. Takið allt hráefnið til nema 1 matskeið af perubitum og 1 matskeið af möndluflögum sem eru geymdar til hliðar til að eiga ofan á grautinn í lokin.
  2. Setjið allt í pott og fáið suðuna upp og slökkvið svo undir og hrærið vel saman.
  3. Skellið í tvær skálar ásamt góðri jógúrt eða skyri (má alveg sleppa).
  4. Toppið með perubitum, möndluflögum og jafnvel smá frosnum berjum.
  5. Setjið smá af kanil á grautinn og þið eruð komin með þennan dásamlega haustlega próteinríka kínóagraut á borðið.
mbl.is