Við Ásbúðartröð í Hafnarfirði er að finna einstaklega sjarmerandi sérhæð á tveimur hæðum í flottu fjölbýlishúsi sem reist var árið 1954. Eignin telur 168 fm og hefur verið innréttuð á fallegan máta.

Eldhúsið er bjart og minimalískt. Stílhreinir ljósgráir hurðarfrontar prýða eldhúsinnréttinguna sem er með góðu skápa- og vinnuplássi. Engir efri skápar eru í eldhúsinu sem gefur rýminu léttleika og leyfir fallegu dönsku hönnunarljósi frá 101 Copenhagen að njóta sín til fulls.
Í stofunni eru stórir og fallegir gluggar sem hleypa nóg af náttúrulegri birtu inn og setja svip sinn á rýmið. Náttúruleg og stílhrein litapalletta er í forgrunni í rýminu, en grænar plöntur og falleg listaverk skapa bæði hlýju og karakter.
Á efri hæð eignarinnar eru þrjú góð svefnherbergi, þar af er notalegt hjónaherbergi þar sem hlýjir og mjúkir litatónar spila lykilhlutverk. Frá hjónaherberginu er útgengt á suðursvalir. Þá er einnig flísalagt baðherbergi á hæðinni með baðkari og sturtu.
Sjá á fasteignavef mbl.is: Ásbúðartröð 9