Trump gefur út gulllitaða skó

Trump gefur út gulllitaða skó

Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, hefur gefið út nýja skólínu. Tilkynnti hann þetta í gær, degi eftir að hann var dæmdur til að greiða um 50 milljarða króna í sekt.

Trump gefur út gulllitaða skó

Donald Trump fyrrverandi Bandaríkjaforseti | 18. febrúar 2024

Trump hefur ákveðið að gefa út gulllitaða skó.
Trump hefur ákveðið að gefa út gulllitaða skó. AFP/Getty Images/Chip Somodevilla

Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, hefur gefið út nýja skólínu. Tilkynnti hann þetta í gær, degi eftir að hann var dæmdur til að greiða um 50 milljarða króna í sekt.

Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, hefur gefið út nýja skólínu. Tilkynnti hann þetta í gær, degi eftir að hann var dæmdur til að greiða um 50 milljarða króna í sekt.

„Mig hefur langað að gera þetta í langan tíma,“ sagði Trump þegar hann afhjúpaði skólínuna á skósýningunni „Sneaker Con“ í Fíladelfíu í Pennsylvaníu-ríki.

Skórnir eru gulllitaðir með bandaríska fánanum á ökklanum. Fæst par af þessum skóm fyrir litlar 55 þúsund krónur, eða 399 dollara.

Trump var fund­inn sek­ur af dóm­ar­an­um Arth­ur Eng­oron á föstudag en á Trump að hafa ýkt virði eigna sinna í þeim til­gangi að knýja fram betri kjör á lán­um og trygg­ing­um. 

The Guardian greinir frá.

Trump að sýna skófatnaðinn.
Trump að sýna skófatnaðinn. AFP/Getty Images/Chip Somodevilla
mbl.is