Tobba fékk frí í nýju vinnunni til að halda hádegisteiti

Hverjir voru hvar | 29. febrúar 2024

Þorbjörg Marinósdóttir, Tobba, bauð í teiti á veitingastaðnum Lemon þar sem hún var að kynna nýja kaffisjeik sem hún gerði í samstarfi við staðinn. Tobba hóf samstarf við Lemon eftir að hún seldi Granólabarinn sem hún rak um tíma úti á Granda. 

Ingileif Friðriksdóttir, Hrafndís Maríudóttir, Þorbjörg Marinósdóttir og Þóra Kolbrá Sigurðardóttir.

„Það er ekki nema von að fólk elski þennan drykk. Hann inniheldur aðeins kaffi, frosinn banana, heslihnetumjólk, hnetusmjör og döðlur. Við erum öll orðin dauðleið á matvöru sem er í raun ekkert annað en iðnaðarvara - oft stútfull af aukaefnum og dulbúnum sykri. Ég er svo alsæl að Fía og Gurrý, eigendur Lemon, séu með mér í að breiða út fagnaðarerindi. Fá og góð hráefni og ekkert drasl takk. Þær selja einnig partýkúlurnar mínar og detox pakkana. Það þarf enginn að vera með þrútinn og þjakaður þegar hægt er að panta sér allt þetta fínerí,” segir Tobba og segir frá því að hún taki alltaf fimm safadaga í mánuði. 

„Sjálf tek ég alltaf 5 daga selleríhreinsun í mánuði. Ég þreytist ekki á að lofa þessa ljósgulu brúska sem á einhvern undraverðan hátt hafa umbreytt lífi mínu. Húðin á mér elskar þetta sull og ég held sykurpúkanum í skefjum með því að drekka eina flösku á fastandi maga á morgnanna. Fyrir utan hvað sellerísafi er hreinsandi og jafnar blóðsykurinn. En ég skal ekkert ljúga að ykkur, þetta er ekki góður drykkur en hann snarvirkar.“

Tobba er með mörg járn í eldinum þessa dagana en í síðustu viku var sagt frá því að hún hefði verið ráðin sem upplýsingafulltrúi menningar- og viðskiptaráðuneytis. Hún byrjaði í nýja starfinu á mánudaginn en fékk hádegishlé til þess að halda teiti á Lemon. 

Eins og sést á myndunum mættu góðir gestir í boðið hjá Tobbu og rann kaffisjeikinn ljúflega niður. 

Guðríður Indriðadóttir eigandi Lemon og Elísa Viðarsdóttir fótboltakona og næringarfræðingur.

Sif Jóhannsdóttir og Ástríður Viðarsdóttir.

Þórdís Heiða Kristjánsdóttir, Guðríður Indriðadóttir og Agnes Hlíf Andrésdóttir.

Aldís Björk Ingadóttir.
Aldís Björk Ingadóttir.
Þorbjörg Marinósdóttir og Hulda Bjarnadóttir.

Kærustuparið Marel Andri Briem Friðjónsson og Aldís Björk Ingadóttir.

Erna Hrönn og Sigga Eyrún.
Erna Hrönn og Sigga Eyrún.
Arna Þorsteinsdóttir og Þorbjörg Marinósdóttir.

Úlfur Steingrímsson fékk sér drykk.
Úlfur Steingrímsson fékk sér drykk.
Karl Sigurðsson og Arney Ösp Vilhjálmsdóttir.

Elísabet Jónsdóttir, Þóra Kolbrá Sigurðardóttir og Anna María Árnadóttir.

Bergljót Stefánsdóttir og Regína Margrét Birkis.

Elín Kristín Guðmundsdóttir, Hildur Ómars og Íris Kara Heiðarsdóttir.

Þorbjörg Marinósdóttir.
Þorbjörg Marinósdóttir.
Regína Margrét Birkis og Guðbjörg Birkis.

Þorbjörg og Rebekka Rut Marinósdætur.
Þorbjörg og Rebekka Rut Marinósdætur.
Guðríður Indriðadóttir, Hafdís Renötudóttir og Jóhanna Soffía Birgisdóttir.

mbl.is