Hafna „hóflausum fjáraustri“ til hælisleitenda

Flóttafólk á Íslandi | 1. mars 2024

Hafna „hóflausum fjáraustri“ til hælisleitenda

Málfundafélagið Frelsi og fullveldi hafnar ríkjandi stefnu stjórnvalda að landamæri landsins standi galopin að kröfu öfgasamtaka og fylgjenda þeirra og beinir því til stjórnvalda að full stjórn sé á landamærunum í samræmi við fullveldi þjóðarinnar og ákvörðunarvald um hverjir komi hingað til lands.

Hafna „hóflausum fjáraustri“ til hælisleitenda

Flóttafólk á Íslandi | 1. mars 2024

Málfundarfélagið vill hertara eftirlit við landamærin.
Málfundarfélagið vill hertara eftirlit við landamærin. mbl.is/Kristinn Magnússon

Málfundafélagið Frelsi og fullveldi hafnar ríkjandi stefnu stjórnvalda að landamæri landsins standi galopin að kröfu öfgasamtaka og fylgjenda þeirra og beinir því til stjórnvalda að full stjórn sé á landamærunum í samræmi við fullveldi þjóðarinnar og ákvörðunarvald um hverjir komi hingað til lands.

Málfundafélagið Frelsi og fullveldi hafnar ríkjandi stefnu stjórnvalda að landamæri landsins standi galopin að kröfu öfgasamtaka og fylgjenda þeirra og beinir því til stjórnvalda að full stjórn sé á landamærunum í samræmi við fullveldi þjóðarinnar og ákvörðunarvald um hverjir komi hingað til lands.

Þetta kemur fram í ályktun félagsins um brýnar aðgerðir til að tryggja stjórn á landamærum Íslands. Ályktunin var samþykkt á opnum fundi málfundafélagsins sem haldinn var á mánudag þar sem þess var krafist að þegar yrði stöðvaður innflutningur hælisleitenda og gripið til annarra aðgerða. 

Gengið of nærri innviðum samfélagsins 

„Málfundafélagið hafnar hóflausum fjáraustri til málaflokks hælisleitenda. Málfundafélagið telur að gengið hafi verið of nærri innviðum samfélagsins í skólum og heilbrigðisstofnunum. Öngþveiti ríkir í húsnæðismálum. Þúsundir Íslendinga hafa hrakist af heimilum sínum í Grindavík, innviðir landsins þola ekki fjölgun um 70 þúsund manns á umliðnum árum,“ segir í ályktuninni. 

Vegna þessa segir í ályktuninni að engar forsendur séu til áframhaldandi innflutning hælisleitenda og því fordæmir málfundafélagið óraunhæfar hugmyndir um stórfelldan innflutning á fólki frá framandi menningarsvæðum á grundvelli „svokallaðar fjölskyldusameiningar,“ að því er fram kemur í ályktuninni.. 

Alvarleg ógn við allsherjarreglu og þjóðaröryggi

„Málfundafélagið vill að tafarlaust verði brugðist við kalli þjóðarinnar eftir aðgerðum,“ segir í ályktuninni og útskýrt að fyrsta verkefni ráðherra sé að beita lagaheimild til að taka upp tímabundið eftirlit á íslenskum landamærum vegna alvarlegrar ógnar við allsherjarreglu og þjóðaröryggi, sem félagið segir í ályktuninni að sé nú tvímælalaust fyrir hendi. 

Þá segir að fjölmörg fordæmi séu fyrir beitingu sambærilegra reglna meðal annarra aðildarríkja Schengen-samstarfsins vegna miklu minni ásóknar í alþjóðlega vernd en Ísland stendur frammi fyrir. 

„Engrar lagasetningar er þörf til að stöðva strauminn og skrúfa þar með fyrir opinn krana á útgjöld úr ríkissjóði.“

Hertara landamæraeftirlit

Félagið leggur jafnframt til að landamærin verði einnig varin með því að taka upp tafarlausa skyldu flugfélaga til að leggja opinberum aðilum til farþegaskrár og vegabréfsupplýsingar. Lendingarleyfi hér á landi verði því aðeins veitt sé þessari skyldu fullnægt.

„Þeim farþegum sem ekki uppfylla skilyrði til að koma til landsins verði vísað frá á flugvelli.“

Til viðbótar krefst málfundafélagið þess að tekin verði upp sú regla að umsækjandi með hæli í öðru landi fá ekki efnisumfjöllun um umsókn um alþjóðlega vernd. Að hætt verði að greiða fyrir lögfræðiþjónustu á fyrri stigum umsóknar og að þak verði sett á lögfræðikostnað á seinni stigum. 

„Ekki kemur til greina að ríkið veiti hælisleitendum meiri aðstoð en býðst almennum íslenskum borgurum,“ segir í ályktuninni. 

Félagið hafnar kröfu um inngildingu 

Loks fer félagið fram á að fjölskyldusameiningar afmarkist við nánustu fjölskyldu og komi aðeins til álita eftir tveggja ára dvöl í landinu. Jafnframt að stuðst verði við DNA-próf til að sannreyna fjölskyldutengsl að norskri fyrirmynd. 

Að danskri fyrirmynd vill félagið að hælisleitendum verði verði gert skylt fyrir fjölskyldusameiningu að hafa haft búseturétt eða landvistarleyfi í tvö ár, hafi lært tungumálið, séu í vinnu, sýni fram á að eiga framfærslu og séu komnir með húsnæði. 

„Gera skal kröfu um aðlögun hælisleitenda og að þeir lýsi stuðningi við vestræn gildi, lýðræði og mannréttindi, þar á meðal jafnrétti kynjanna. Hafnað er kröfu um svonefnda inngildingu sem felur í sér að Íslendingar skuli lagi sig að siðum og háttum aðkomufólks.“

mbl.is