Köngulóarmaðurinn heillaður af töfralækni

Ást í Hollywood | 3. apríl 2024

Leikarinn Andrew Garfield er sagður vera kominn með nýja kærustu upp á arminn. Sú heppna heitir Kate Tomas og er 41 árs gömul. Hún starfar sem eins konar töfralæknir og er víst með þeim eftirsóttustu í heimi í dag. 

Leikarinn Andrew Garfield er með þeim vinsælustu í dag.
Leikarinn Andrew Garfield er með þeim vinsælustu í dag. JON KOPALOFF

Leikarinn Andrew Garfield er sagður vera kominn með nýja kærustu upp á arminn. Sú heppna heitir Kate Tomas og er 41 árs gömul. Hún starfar sem eins konar töfralæknir og er víst með þeim eftirsóttustu í heimi í dag. 

Leikarinn Andrew Garfield er sagður vera kominn með nýja kærustu upp á arminn. Sú heppna heitir Kate Tomas og er 41 árs gömul. Hún starfar sem eins konar töfralæknir og er víst með þeim eftirsóttustu í heimi í dag. 

Á dögunum sást til Garfield og Tomas njóta kvöldverðar á franska veitingastaðnum Zinqué í Malibu. Parið átti ljúfa stund ásamt vinafólki sínu, grínistanum Bo Burnham og tónlistarkonunni Phoebe Bridgers. Myndir náðust af Garfield og Tomas stuttu eftir að þau yfirgáfu veitingastaðinn, þar sem þau gengu hönd í hönd. 

Garfield hefur reynt eftir fremsta megni að halda einkalífi sínu fjarri sviðsljósinu, en samband hans og leikkonunnar Emmu Stone vakti mikla athygli á sínum tíma. Garfield og Stone, sem kynntust við gerð kvikmyndarinnar The Amazing Spiderman, voru saman í fimm ár. Sambandi þeirra lauk 2015. 

Leikarinn hefur einnig verið orðaður við Ritu Ora og Phoebe Dynevor. 

mbl.is