Vilja ekki útlendinga í starfið

Flórens þykir fögur borg.
Flórens þykir fögur borg. mbl.is/Ómar Óskarsson

Atvinnuauglýsing kráreiganda í Flórens hefur vakið mikið umtal á Ítalíu í ljósi þess að í henni er tiltekið að ekki sé óskað eftir starfskröftum útlendinga eða Ítala frá Suður-Ítalíu.

Á auglýsingunni er tilgreint að óskað sé eftir þremur barþjónum á krána sem stendur á sögufrægum stað í miðborginni. Þá er sagt að nauðsynlegt sé að búa yfir enskukunnáttu auk þess að þekkja mat og drykk en í lok hennar stendur feitletrað að ekki sé óskað eftir starfskröftum útlendinga og Ítala frá Suður-Ítalíu. 

The Local segir frá. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert